Sperðill var’ða heillin

Haldiði að ég hafi ekki fengið bjúga í matinn hérna í vinnunni. Alveg krúsjal! Mikið andskoti fannst mér hún góð. Það er alveg skammarlegt hversu sjaldan maður fær svona almennilegan mat. Ég tæki bjúgu fram yfir pizzu eða hammara ení dei!

Yfir í allt annað. Nú er ég farinn að blogga á moggablogginu aftur á fullu. Þið tékkið á því.

Aumingja Sproti

Sjúkrasaga hundsins heldur áfram. Nú virðist sem Sproti greyið hafi tognað svona illilega á hálsi. Líklega gerðist það þegar hann var í bandi upp í bústað hjá tengdó. Hefur hann þá verið að elta eitthvað og bandið klárast og slinkur komið á hálsinn þegar hann rykkist til. Hundurinn hefur ekki verið svipur hjá sjón undanfarið og neitað að leika og lata hnoðast með sig. Hann vildi ekki einu sinni harðfisk! Þá er nú mikið að.

Nú er garmurinn kominn á verkjalyf og virðist allur vera að koma til. Leikurinn og gleðin er að koma í hann aftur en maður sér þó að hann kveinkar sér aðeins enn og hlífir sér.

Vonandi nær hann Sproti minn að jafna sig á þessu. Hann er jú svo harður af sér.

Ruslpósts atómljóð I

Eftirfarandi barst mér í morgun í ruslpósti (spam) frá gervimanninum Rudolph Beach. Ég tók mig til og gerði atómljóð úr handhófskenndum orðaflaumnum í titli bréfsins.

Lesbian Picture
eftir mig og Rudolph Beach

Tart friends cumming sexely
died week japan tough forces
High medical hezbollah girl
second conference single

…both judge and place

Aumingja Sproti

Ég fór með Sprota til dýralæknis í dag til að láta athuga á honum augað. Þá kom í ljóst að hundgreyið er með eitthvað sem er kallað Cherry Eye eða “góðkynja kirtilæxli í tárakirtli í 3ja augnloki” eins og það heitir víst. Á heimasíðu hennar Helgu læknisins hans Sprota stendur þetta um þennan augnsjúkdóm:

Á bakhlið 3ja augnloks augans er tárakirtill sem getur stækkar þegar í honum myndast góðkynja (kirtil)æxli. Þá verður ekki lengur pláss fyrir kirtilinn á sínum stað og hann verður vel sýnilegur í augnkróknum.

Þó æxlið sé góðkynja verður að koma kirtlinum aftur fyrir á sínum stað, en það er gert með skurðaðgerð. Án hennar myndast hætta á ofþurrki í auganu með aldrinum vegna táraþurrðar, en kirtillinn framleiðir helming allra augntáranna. Þessi sjúkdómur er álitinn vera arfgengur.

Það er þó engin ástæða til að hafa áhyggjur af Sprota greyinu og ekki mun hann kveljast neitt. Allavega lofaði dýralæknirnn mér því að það væri alveg 100% öruggt að hann fyndi ekkert fyrir þessu. Verst er þó að allar líkur eru á því að hann þurfi að fara í aðgerð en heppnist hún vel, sem allar líkur eru á, ætti hann þó að jafna sig algerlega þó alltaf muni sjást á honum smá bólga og roði.

Við vonum að þetta fari allt vel. Ég leyfi ykkur að fylgjast með framvindu mála.

Talan fimmtíu

50 staðreyndir sem ættu að breyta gangi heimsins

Afar áhugaverð og nauðsynleg lesning. Vissir þú t.d. að greitt er með hverri einustu kú á evrópska efnahagssvæðinu sem nemur 230 krónum á dag og að þrír af hverjum fjórum Afríkönum þurfa að lifa á minni pening en það?

50 bestu tilvitnanir um karlmenn

“It’s not the men in my life that counts, it’s the life in my men” ~ Mae West

“Men play the game; women know the score” ~ Roger Woddis

Fallega fólkið

sexy.jpg

Sexy People er besta blogg sem ég hef uppgötvað nýlega. Ef við værum nú öll jafn falleg og þetta fólk þá væri tilveran eins og einn endalaus þáttur af Glæstum Vonum.

Nýjar myndir

Eins og glöggir gestir sjá eflaust hér til hliðar þá eru komnar inn nokkrar nýjar myndir af okkur fjölskyldunni. Auðvitað er herra Jóel í forgrunni en við hin náum að lauma okkur inn á einstaka mynd líka. Flickr er eitthvað að stríða okkur og gengur með endæmum illa að setja myndirnar inn. Þið verðið því að kíkja við reglulega til að sjá hvort okkur hafi ekki tekist að þröngva örlítið fleiri myndum inn á þessa blessuðu síðu.

Annars gekk útilegan með eindæmum vel og svaf sá litli eins og steinn þrátt fyrir almenna ísskápsstemmingu á næturna (hitinn fór niður í 2 gráður á föstudagsnóttinni). Eitthvað sváfu foreldrarnir þó minna enda annaðhvort að drepast úr kulda eða áhyggjum af drengnum. Allir komust þó heilir heim á endanum glaðir en þreyttir.

Næsta ferðalag er svo sumarbústaður í ágúst og get ég ekki beðið enda farið að langa óstjórnlega í smá sumarfrí. Ég er búinn að vera á hálfu gasi hérna í vinnunni undanfarið og ljóst að maður þarf að komast í frí og fylla á tankinn.

Farin á ættarmót

Þá er fjölskyldan litla á lanholtsveginum lögð af stað á ættarmót á Hvammstanga. Ætlum við að gera aðra tilraun til að sofa með Jóel í tjaldi og ætti það að ganga ágætlega ef veður leyfir. Það virðist ætla að viðra ágætlega þó hitastigið verði í lægri kanntinum. Þá er bara að klæða sig vel og sinna bjórnum samviskusamlega.
Myndir úr ferðinni verða svo birtar fljótlega eftir helgi og verða þær að öllum líkindum í boði ömmu Ástu.

Áhugasamir geta fræðst meira um ættarmótið hér.

Kominn aftur

egillogoli.jpgÞá er maður kominn heim eftir frábæra en afar erfiða Roskilde hátíð. Það var skínandi sól og blíða alla hátíðina og maður hafði varla við að drekka bjórinn því hann gufaði upp af manni jafn óðum. Svo smaug moldrykið inn um öll vit og gáttir og settist á mann allan löðrandi sveittann. Maður var yfirleitt svo búinn á’ðí eftir hvern dag að ekki kom annað til greina en að fara heim á kristilegum tíma. Það munaði auðvitað öllu að geta sofið á bedda með dínu (takk Jónas) og þurfa ekki að vakna klukkan sex á morgnana í vafasömu ástandi í fjörutíu stiga hita í einhverju tjaldi.

Ég mun vera með nánari umfjöllun um hátíðina á Rjómanum á næstu dögum.

En mikið er nú gott að vera kominn heim í faðm fjölskyldunnar. Jóel Orri búinn að fullorðnast heilmikið og farinn að gera helling af nýjum hlutum. Maður má eiginlega ekki gera sér (og öðrum) það þvælast svona á útihátíðir út í heimi þegar maður á svona gullmola heima hjá sér til að sjá um og elska. Við Linda höfum líka rætt það með einhverri alvöru að fara með alla fjölskylduna þarna út á næsta ári. Það væri algerlega ídealt!

Að lokum er hér svo tengill á Rokkland á Rás 2 frá sjötta þessa mánaðar en þar má heyra viðtal við mig sem tekið var á hátíðinni. Þið þurfið að hlusta (eða spóla áfram) í svona tíu mínútur.

p.s. myndirnar eru á leiðinni

Myndaflóð

Jæja þá er pabbinn farinn að drullumalla á Hróarskeldu og við Jóel erum ein í kotinu. Sproti og amma Erla koma í kvöld til að veita okkur félagsskap og fara með okkur í sund á morgun. Já Jóel töffari er byrjaður í ungbarnasundi. Er nokkur maður með mönnum í dag nema að vera í ungbarnasundi? Hann er alveg að fíla þetta nokkuð vel eins og sjá má á myndunum sem ég var að hrúga inn. Þessar myndir eru allar í boði ömmu Ástu (eins og reyndar flest allar myndirnar) en hún og afi Lalli komu með okkur í einn tímann í síðustu viku. Amma Ásta er algjör snillingur á nýju myndavélina sína eins og sést. Takk amma Ásta, knús.

Þarna má líka sjá myndir úr fyrstu útilegunni sem við fórum í um helgina. Þetta var nokkurskonar prufu útilega fyrir ættarmót sem við erum að fara á eftir nokkrar vikur. Það gekk svona líka vel, allavega svaf Jóel eins og steinn í tjaldinu en mamman lá andvaka alla nóttina og starði á litla dúðaða gaurinn sinn sofa vært í nýja 66°N svefnpokanum sínum og svaf auðvitað ekki neitt.

Þarna eru líka myndir af Jóel í píanótíma hjá afa Lalla. Efnilegur gaur. Hann er voða hrifinn af svarta og hvíta litnum, fyrir utan það auðvitað að þeir eru á einkennislitir fótboltaliðs nokkurs hér í bæ, ehhem. Þá fara auðvitað gulur og svartur mun betur saman ;-)

« Previous Entries